Pabbi og Mamma
Ég elska föður minn og móður
saman þau gáfu mér líf af gjöf.
Þau hafa farið margar ótroðnar slóðir
bæði yfir lönd og heimsins höf.
Margar góar stundir saman við höfum eytt
allt frá heimili okkar eða upp í sveit.
Til að gleðja þau þarf nánast ekki neitt
en það ég best allra veit.
Þau sáu mig ganga mín fyrstu spor
og setjast á fyrst á skólabekk.
Fylla mig af kjak og þor
þegar í svartholið ég sekk.
Alltaf sýna þau mér hina réttu leið
og sjá það sem enginn annar sér.
Við höfum verið vinir um langt skeið
en enginn breytir því sem núna er.
Við stöndum saman í hverjum harmi
og í gegnum það hvort annað leiðum.
Yfir foreldrum mínum mikill bjarmi
sem skín á hverri stund sem við eyðum.
Við verðum saman alla tíð
og enginn getur stoppað það.
Hver stund með ykkur er falleg og fríð
en sem barn ég bað guð um það.
Ég fékk þetta fallega ljóð lánað á ljóð.is en það er eftir Þursa.